Breyttur fundartími á kynningarkvöldi Mánudaginn 6. september (áður auglýst þriðjudaginn 7.september) verður boðið upp á kynningarkvöld fyrir foreldra, allir Hjallaforeldrar hjartanlega velkomnir. Á fundinum verður farið yfir dagskipulagið, kynna hvað er verið að gera í hópatímum, valtímum, útivist, matartímar, hvíld o.s.frv. Einnig verður myndasýning úr starfinu, myndir segja meira en mörg orð. Fundurinn verður haldinn í safnaðarheimili Víðistaðakirkju og hefst klukkan 20.30 og lýkur klukkan ... (31. 8. 2010)
1. lota - Agi; virðing, hegðun, kurteisi, framkoma Í fyrstu lotu kynjanámskrárinnar eru R-reglurnar eru í hávegum hafðar í Hjallastefnustarfi; röð, regla og rútína í fyrirrúmi á öllum sviðum. Kjarnað umhverfi alls staðar, allir hlutir merktir, umferðarreglur merktar og sýnilegt og áþreifanlegt hvernig allt á að vera. Þaulhugsuð dagskrá og einfaldleiki í öllu skipulagi er jafnmikilvægt og umhverfiskjörnunin. Í kjarnastarfinu er síðan áherslan á skarpa nemendastjórnun með nákvæmri eftirfylgd og hegðunarreglum sem börnin taka þátt í að ... (30. 8. 2010)
Nú gaman gaman er! Fyrsti mánuður skólaársins hefur aldeilis farið vel af stað. Í húsi eru þaulvanir kennarar og reynslurík börn og hefur aðlögun nýrra barna frá Litla Hjalla og víðar gengið eins og í ljúfu ævintýri. Allir hafa notið veðurblíðunnar sem verið hefur á þessum fyrsta mánuði skólaársins og verið mikið útivið að uppgötva leyndardóma náttúrunnar. Það er að sjálfsögðu ekki annað hægt en hreinlega að hoppa af kæti yfir þessu öllu saman!! (30. 8. 2010)
Vistunartímar og vottorð Beiðni um breytingar á vistunartímum og vottorð til lækkunar á gjöldum (einstæðir foreldrar og námsfólk) þurfa að berast til skrifstofunnar fyrir 20. hvers mánaðar. Að þessu sinni veitum við frest til 25. ágúst. Ef einhver þarf að breyta vistunartíma þá talið við starfsfólk á ykkar kjarna og fáið eyðublað til útfyllingar. Við metum svo hvort við getum orðið við beiðninni og látum ykkur vita. ATH skila þarf vottorði um námsvist í upphafi hverrar annar og vottorði um fjölskylduhagi í upphafi ... (20. 8. 2010)
Reglur varðandi afsláttargjöld Aðilar sem eiga rétt á afsláttargjöldum samkvæmt samþykktum bæjarstjórnar Hafnarfjarðar Börn einstæðra foreldra og námsmanna eiga rétt á afsláttargjöldum samkvæmt samþykktum bæjaryfirvalda. Til að öðlast rétt til afsláttargjalds þarf að framvísa eftirtöldum viðurkenndum vottorðum/ staðfestingum: Einstæðir foreldrar framvísa vottorði um fjölskylduhagi frá Manntali, sem sækja má í Þjónustuver á Standgötu 6. Í upphafi leikskólagöngu ber að skila slíku vottorði til ... (19. 8. 2010)
Uppskerutími!! Nú er komið að því að njóta afrakstur erfiðis og sækja uppskeruna í skólagarðana. Stóruhóparnir sáðu í garðana í vor og fóru á dögunum að sækja girnilegar kartöflur, rófur, grænkál og ýmislegt fleira góðgæti. Gleðin og ánægjan lýsti af hverju andliti og ekki spillti fyrir að fá að taka til hendinni í moldarbeðunum! (13. 8. 2010)
Fjölskylduframlag Við höfum verið að prófa okkur áfram með Fjölskylduframlag í leikskólanum og gengið glimrandi vel. Ef foreldrar eða aðrir fjölskyldumeðlimir hafa eitthvað í sínum fórum sem hentar sem framlag til skólans þá er það vel þegið :) Það getur t.d. verið að koma fram á skemmtunum skólans, koma í hreingerningu, garðvinnu, leggja fram iðnaðarmannavinnu, smíðar, rafmagn... og margt margt fleira sem ykkur dettur í hug! (11. 8. 2010)
Ábending um starfið Við viljum vekja athygli ykkar á flipanum á heimasíðunni okkar "ábending um starfið". Þar er hægt að koma öllum ábendingum á framfæri, hvort sem það er eitthvað sem ykkur líkar vel eða ekki vel... Við viljum endilega fá að vita ykkar skoðanir til að geta betrumbætt leikskólann okkar. Valhnappurinn er vinstra megin á forsíðunni, blár á litinn. (11. 8. 2010)