Hrafnhildur til liðs við Hjallastefnuna

Það er með gleði og stolti að segja frá því að Hrafnhildur Hafsteinsdóttir hefur verið ráðin í nýtt starf markaðs- og gæðastjóra hjá Hjallastefnunni. Hrafnhildur mun stýra markaðs- og gæðamálum, sjá um viðburði, samskipti við innlenda og erlenda fjölmiðla, innleiðingu umbótaverkefna ásamt yfirsýn yfir þjálfun starfsfólks og uppbyggingu á þeim þætti í starfinu. Hjallastefnan er eitt af stærri fyrirtækjum landsins þegar kemur að fjölda starfsfólks og umfangi með yfir 450 starfsmenn.
Hrafnhildur hefur víðtæka menntun og 20 ára reynslu í stjórnunar-, markaðs- og menntamálum. Hún hefur sl. þrjú ár verið framkvæmdastjóri Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) en áður starfaði hún í níu ár sem verkefnastjóri MBA náms við Háskólann í Reykjavík (HR) og þar áður í fimm ár sem kynningarstjóri Námsgagnastofnunar.
Hrafnhildur er með PLD gráðu frá IESE Business School í Barcelona, B.A. gráðu í almannatengslum frá Auckland University of Technology á Nýja Sjálandi og IAA gráðu í markaðs- og auglýsingafræðum frá IACT í Kuala Lumpur, Malasíu. Hrafnhildur er einnig með gráðu í markþjálfun frá Háskólanum í Reykjavík.
,,Hjallastefnan hefur unnið gríðarlega öflugt starf sem aukið hefur á fjölbreytni í skólastarfi. Ég hlakka til að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu og þeim vexti sem fram undan er og að ganga til liðs við þann flotta hóp fólks sem þarna vinnur,” segir Hrafnhildur.
Þórdís Jóna Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar segir það mikinn feng að fá Hrafnhildi til liðs við Hjallastefnuna á þessum tímamótum. ,,Hún hefur víðtæka reynslu og innsýn í menntamál sem mun nýtast vel. Auk þess hefur Hrafnhildur reynslu af því að stýra stórum hópum og leiða breytingar sem m.a. fela í sér valdeflingu starfsfólk sem hefur verið veigamikill þáttur í starfi Hjallastefnunnar frá upphafi.”
Hrafnhildur mun taka við stöðu markaðs- og gæðastjóra Hjallastefnunnar á næstu vikum en sinna starfi framkvæmdastjóra FKA þar til ráðið hefur verið í hennar stað. Hún segist kveðja FKA stolt yfir þeim árangri sem náðst hefur og þeim mikilvægu verkefnum sem félagið standi fyrir.