20.05.22
Við leitum eftir öflugu fólki í okkar frábæra hóp í leikskólann Sólborg í Sandgerði
Auglýst er eftir starfsfólki í tvær stöður: meðstýru/meðstjórnanda og sérkennslustýru/sérkennslustjóra
Umsóknarfrestur er til og með 1. júní.
Við leitum að jákvæðum og lífsglöðum einstaklingum sem til eru í að tileinka sér starfshætti Hjallastefnunnar af gleði og kærleika.
Viðkomandi þarf að sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og hafa áhuga á jafnrétti og lýðræði í skólastarfi.
Menntunar – og hæfniskröfur fyrir sérkennslustýru/stjóra starfið
Menntun sem nýtist í starfi
Lipurð, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi.
Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði
Reynsla af sérkennslu æskileg og/eða reynsla sem nýtist í starfi
Menntunar – og hæfniskröfur fyrir meðstýru/stjórnenda starfið
Leyfisbréf til að nota starfsheitið leikskólakennari eða önnur menntun sem nýtist í starfi
Lipurð, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi.
Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði
Ef þú hefur áhuga á að sækja um vinsamlegast sendu umsókn á solborg@hjalli.is
Hvetjum þig til að heyra í okkur ef þú vilt vita meira en allar nánari upplýsingar veitir Hanna Jóhönnu Þórsteinsdóttir, leikskólastýra á netfanginu hannath@hjalli.is