Ásthildur bæjarstjóri heimsækir Hólmasól
08.11.18
Við í Hjallastefnunni fáum til okkar marga góða gesti í heimsókn og í vikunni var það Ásthildur, bæjarstjóri Akureyrar, sem kom og heimsótti leikskólann okkar á Akureyri, Hólmasól.
„Þvílík hamingja og stolt sem fylgdi því að sýna skólann og allir hópatímar til fyrirmyndar,” segir Alfa, skólastýra á Hólmasól. „Í gangi voru raunveruleikatengd verkefni; þrautabraut, grímugerð, málun, litaverkefni, lottó, framsögn í míkrafón og meira skemmtilegt.“
Hólmasólin skín.