Hjallísk aðferðafræði fyrir stjórnendur

Byltingarverðlaunin 2019 voru veitt af Viðskiptaráði og Manino í annað sinn á dögunum á ráðstefnunni Bylting í stjórnun. Í ár runnu verðlaunin til Hjallastefnunnar sem þótti hafa skarað fram úr öðrum við innleiðingu og notkun nýrra og framsækinna stjórnunaraðferða. Á stuttum morgunfundi mun Þórdís Jóna Sigurðardóttir, framkvæmdastýra Hjallastefnunnar fara yfir aðferðafræði og byltingarkenndar leiðir til að ná fram því besta frá starfsfólki og fjalla m.a. um vinnutímastyttingu og valdeflingu.

Föstudaginn 29. nóvember kl. 8.30 – 9.30
Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35
Hylur á 1. hæð

Opinn fundur og allir velkomnir.

Létt kaffispjall og umræður að fundi loknum.

Skráning hér: http://bit.ly/morgunfundur-hjallastefnan-2019