Leikskólinn Bergheimar leitar að öflugum leikskólakennara til starfa

Hjallastefnu leikskólinn Bergheimar í Þorlákshöfn leitar að öflugum
leikskólakennara til starfa í 100% stöðu. Við leitum að jákvæðum og
lífsglöðum einstakling sem til er í að tileinka sér starfshætti Hjallastefnunnar
af gleði og kærleika. Viðkomandi þarf að sýna sjálfstæði í
vinnubrögðum og hafa áhuga á jafnrétti og lýðræði í skólastarfi.

Menntun og hæfniskröfur
– Leikskólakennaramenntun eða leyfisbréf til að nota starfsheitið leikskólakennari.
– Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í starfi.
– Lipurð, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi.
Ef ekki fæst leikskólakennari til starfa verður ráðið tímabundið í stöðuna.

Leikskólinn Bergheimar leitar að auki eftir duglegum, jákvæðum og drífandi einstakling
sem til er í að vinna frá kl. 15:00 – 17:00 alla virka daga á skilavakt.

Hafir þú áhuga á að sækja um, sendu umsókn og ferilskrá á netfangið karen@hjalli.is en umsóknarfrestur
er til og með 18. mars.
Allar nánari upplýsingar veitir Karen Viðarsdóttir, leikskólastýra Bergheima á netfanginu karen@hjalli.is