Hjallastefnan heima

Hjallastefnan heima er hlaðvarp Hjallastefnunnar. Megin markmið hlaðvarpsins er að vera stuðningur við barnafjölskyldur og gera fjölskyldulífið og uppeldið ánægjulegra. Við deilum lykilþáttum í hugmyndafræði Hjallastefnunnar sem við vitum að virkar vel í öllum aðstæðum.

Í þáttunum er rætt við skólastýrur, kennara og aðra góða gesti sem veita góð ráð sem nýtast heima fyrir. Í þáttunum fá hlustendur að kynnast hugmyndafræði Hjallastefnunnar sem uppeldisafl þar sem jafnrétti, sköpun og lýðræði eru meginstef.

Fyrsta sería hlaðvarpsins inniheldur tíu þætti sem eru aðgengilegir á öllum helstu hlaðvarpsveitum: Spotify, Apple podcast og einnig má hlusta á hlaðvarpið í vafra.