Fyrir fjölmiðla - For Media
- Hjallastefnan er hugmyndafræði og starfshættir fyrir leik- og grunnskóla sem komu fram á sjónarsviðið í núverandi mynd haustið 1989 í leikskólanum Hjalla í Hafnarfirði. Stefnan er íslenskt hugverk, sett fram af Margréti Pálu Ólafsdóttur, höfundi stefnunnar.
- Heitin Hjalli og Hjallastefnan tengdust upphaflega staðsetningunni, Hjallabraut, en þar höfðu áður verið fiskihjallar, vinnustaður kvenna á fyrri tímum. Hjalli í eintölu hefur hins vegar margar og ólíkar skírskotanir í íslensku. Að klífa hjallann er auðvitað að sigrast á hindrunum og halda áfram, glatt á hjalla er þar sem gleðin ríkir og loks tengist hjalli því að brjóta hefðir og tabú samkvæmt sögunni af prestinum á Hjalla sem leyfði kirkjugestum að dansa í kirkjunni.
- Hjallastefnan ehf. var stofnuð 1999 af Margréti Pálu höfundi skólastefnunnar til að skapa Hjallastefnunni sem skólastefnu sem bestar aðstæður til þróunar og er hún aðaleigandi félagsins.
- Fyrirtækinu var einnig ætlað að valdefla konur og kvennastörf sem og að auka fjölbreytni í skólastarfi.
- Sem jafnréttisfélag hefur Hjallastefnan barist fyrir því að allir skólar njóti jafnræðis varðandi opinber fjárframlög óháð því hver annast reksturinn enda séu skólafólk og foreldrar í meirihluta við stjórnvölinn í bæði eignarhaldi og stjórnun menntafyrirtækja. Slíkt jafnræði er forsenda þess að allir foreldrar fái notið valfrelsis þegar kemur að uppeldi og menntun barna sinna, óháð fjárhagsstöðu og öðrum þáttum.
- Hjallastefnan sem fyrirtæki hefur skapað vettvang fyrir samvinnu allra þeirra leik- og grunnskóla sem starfa eftir skólastefnunni. Þannig hefur fyrirtækið gert samninga við ellefu sveitarfélög víðs vegar um landið um sjálfstæðan rekstur Hjallastefnuskólanna.
- Sameiginleg Hjallamiðstöð annast rekstur skólanna undir stjórn framkvæmdastjóra og stjórnar hlutafélagsins. Skólastjórar mynda aðalráð félagsins í stefnumörkun og ákvörðunum. Hver skóli starfar síðan mjög sjálfstætt undir stjórn skólastjóra.
- Nú eru fjórtán leikskólar og þrír grunnskólar innan vébanda Hjallastefnunnar.
- Á síðustu árum hefur fjöldinn í Hjallastefnuskólunum verið frá 1.500-2000 börn á aldrinum eins árs til 12 ára. Starfsmannafjöldinn hefur verið um 500 – 600 starfsmenn í nokkuð færri stöðugildum.
All information about Hjalli Model in English on hjallimodel.com – https://www.hjallimodel.com/