Fjölbreyttur matseðill hjá Hjallastefnunni.

Guðrún Silja, skólastjóri Öskju, leikskóla Hjallastefnunnar í Öskjuhlíðinni skrifar:

Af gefnu tilefni.

Hér neðst í þessari færslu gefur á að líta matseðilinn í Öskju og 6 öðrum Hjallastefnuskólum á höfuðborgarsvæðinu og hægt að skoða hann margar vikur aftur í tímann.

Á boðstólnum eru grænmetisréttir stundum tvisvar í viku sem börn frá 12 mánaða – 11 ára og kennararnir þeirra borða saman af bestu lyst, auðvitað misvel eins og við erum misjöfn því það gengur víst ekki eitt yfir alla. Vinsælasti rétturinn er t.d. spínatpasta með ferskum parmesanosti og grænmetislasagna kemur þar fast á eftir. Fiskur er afar vinsæll líka og uppáhalds meðlætið með honum er avókadóbaunasalat með kóríander.

Allt er þetta eldað frá grunni í pínulitlu eldhúsi beint frá hjartanu af tveimur snillingum sem brenna fyrir því að börn borði hollan, góðan og fjölbreyttan mat í skólanum sínum.

Já krakkar mínir, kraftaverkin gerast nefnilega.
Börn geta borðað allskonar mat.

http://askja.hjalli.is/Skolastarfid/Matsedill