Nytsamlegt listaverk í afmælisgjöf

Í  vikunni hefur risið fallegt og nytsamlegt listaverk fyrir framan Hjalla, leikskóla Hjallastefnunnar í Hafnarfirði.

Um er að ræða hönnun eftir leikmyndahönnuðina Daníel og Lindu sem afmælisgjöf frá Hjallastefnunni til Hjalla sem varð 30 ára í haust.

Það mátti strax sjá mikla gleði með verkið hjá börnunum þegar þau luku skóladeginum.