Viltu slást í hópinn?

Barnaskólinn i Hafnafirði auglýsir eftir aðstoðarmanneskju?

Viltu slást í hópinn og vinna með okkur hjá Barnaskólanum í Hafnafirði? Við erum Hjallastefnuskóli þar sem eru 130 börn á leik- og grunnskólaaldri og fram fer einnig fjölbreytt frístundarstarf.

Við leitum að jákvæðum, úrræðagóðum og lífsglöðum einstakling sem er til í að tileinka sér starfshætti Hjallastefnunnar af gleði og kærleika. Viðkomandi þarf að búa yfir góðri samskiptafærni, sveigjanleika, sýna sjálfstæði í fjölbreyttri vinnu og hafa áhuga á jafnrétti og lýðræði í skólastarfi.

Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um starfið

Skoða nánar á Alfred.is og nánari upplýsingar um starfið HÉR